Endurupptökudómur Úrskurður fimmtudaginn 5. júní 2025 í máli nr. 1/2025 Endurupptökubeiðni Lindu Pétursdóttur 1.Dómararnir Berglind Svavarsdóttir, Karl Axelsson og Stefán Geir Þórisson kveða upp úrskurð í máli þessu. 2.Með beiðni sem barst Endurupptökudómi 29. janúar 2025 fór endurupptökubeiðandi, Linda Pétursdóttir, […], Reykjavík, fram á endurupptöku á máli nr. S-2509/2020: Ákæruvaldið gegn Lindu Pétursdóttur, sem dæmt var í Héraðsdómi Reykjavíkur 19. júní 2020. Þá krefst endurupptökubeiðandi málskostnaðar fyrir Endurupptökudómi. 3.Gagnaðili, ríkissaksóknari, telur ekki efni til að heimila endurupptöku málsins. 4.Við meðferð málsins var Stefán Karl Kristjánsson lögmaður skipaður verjandi endurupptökubeiðanda. Þann 10. mars 2025 var beiðni endurupptökubeiðanda um frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til meðferðar hjá Endurupptökudómi hafnað. Gagnaöflun í málinu lauk 21. maí 2025. Málsatvik 5.Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 19. júní 2020 í máli nr. S-2509/2020 var endurupptökubeiðandi sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Málið var höfðað með ákæru 7. apríl 2020, fyrirkall birt á lögheimili endurupptökubeiðanda 8. júní sama ár, þingfest 19. júní og dómtekið sama dag samkvæmt 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála en endurupptökubeiðandi sótti ekki þing. Í ákæru kom fram að málið væri höfðað gegn endurupptökubeiðanda meðal annars fyrir að hafa „sunnudaginn 8. september 2019 ekið bifreiðinni […] svipt ökurétti um Lágmúla uns lögregla stöðvaði aksturinn við veitingastaðinn Snoker og Pool. […] Föstudaginn 14. febrúar ekið bifreiðinni […] norður Grensásveg og um Skeifuna, óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis og ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandi 0,44 ‰, amfetamín 200 ng/ml og MDMA 105 ng/ml) uns lögregla hafði afskipti af henni við Hagkaup í Skeifunni. […] Miðvikudaginn 22. janúar 2020 ekið bifreiðinni […] austur Borgartún, óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis og ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandi 0,70 ‰, amfetamín 110 ng/ml og kókaín 590 ng/ml) uns lögregla stöðvaði aksturinn við Borgartún 26. […] Telst háttsemi ákærðu í 1., […] tl. varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og háttsemi í 4. og 5. tl. við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. sömu laga. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til sviptingar ökuréttar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ 6.Í framangreindum dómi kom fram að með brotum sínum hefði endurupptökubeiðanda öðru sinni verið gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum áfengis og/eða ávana- og fíkniefna og þá var gerður hegningarauki vegna aksturs svipt ökurétti. Með hliðsjón af sakarefni málsins og ákvæðum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing endurupptökubeiðanda ákveðin 960.000 ENDURUPPTÖKUDÓMUR NR. 1/2025 - 2 - króna sekt til ríkissjóðs og henni gert að sæta sviptingu ökuréttar í 4 ár og 6 mánuði frá birtingu dómsins. Þá var henni gert að greiða allan sakarkostnað málsins. 7. Þann 28. október 2020 gekkst endurupptökubeiðandi undir tvær sektargerðir lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu vegna aksturs undir áhrifum áfengis og/eða ávana- og fíkniefna 11. júní 2020 og 20. júní 2020 og var svipt ökurétti samtals í 4 ár og 6 mánuði til viðbótar fyrri sviptingartíma. Rökstuðningur málsaðila Rökstuðningur endurupptökubeiðanda 8.Endurupptökubeiðandi reisir málatilbúnað sinn á því að hún hafi ekki haft vitneskju um fyrirtöku málsins enda hafi henni ekki verið birt fyrirkall og að niðurstaða málsins sé bersýnilega röng. Málið hafi verið dæmt á grundvelli útivistar en fyrirkall hafi verið birt á lögheimili endurupptökubeiðanda fyrir móður hennar. Í framhaldi hafi bæst við tvær sektargerðir, önnur vegna brots sem framið var 11. júní 2020 og hitt vegna brots framið 20. júní 2020. Það leiði hins vegar að tvennu; 1) Þær sektargerðir séu hegningarauki við þann dóm sem hér um ræðir og hefði átt að taka tillit til þess við ákvörðun sviptingartíma. 2) Þar sem ákæra hafði ekki verið birt henni hefði hún með réttu átt þess kost að fá endurupptöku á málinu. Þá standi dómurinn í vegi fyrir því að unnt sé að sækja um leiðréttingu með endurveitingu ökuréttinda. Endurupptökubeiðandi byggir á því að rétt afgreiðsla hefði verði að svipta hana ökuréttindum í einu lagi í stað þess að sviptingartími væri brotinn upp. Hefði verið staðið þannig að málum hefði hún átt þess kost að fá ökuréttindi sín árið 2025 í stað 2029. Rökstuðningur gagnaðila 9.Gagnaðili fellst ekki á málatilbúnað endurupptökubeiðanda. Ákæra sem hafi verið gefin út 7. apríl 2020 hafi verið birt á lögheimili endurupptökubeiðanda þann 8. júní 2020 eins og heimilt er samkvæmt 1. mgr. 156. gr. laga nr. 88/2008. Endurupptökubeiðandi hafi ekki sótt þing við þingfestingu málsins og ekki boðað forföll. Málsmeðferðin hafi að þessu leyti verið í samræmi við ákvæði laga nr. 88/2008. Ekki verði séð að sönnunargögn hafi verið rangt metin svo áhrif hafi haft á niðurstöðu dómsins. Þá sé niðurstaða héraðsdóms um ákvörðun viðurlaga í samræmi við áralanga dómaframkvæmd í sambærilegum málum og ákvæði umferðarlaga. 10.Þann 28. október 2020 hafi endurupptökubeiðandi gengist undir tvær sektargerðir lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir brot gegn m.a. 1. gr., sbr. 2. mgr. 49. gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 50. gr., sbr. 95. gr. umferðarlaga. Brotin voru framin 11. og 20. júní 2020. Háttsemi samkvæmt framangreindum sektargerðum hafi ekki verið til umfjöllunar í héraðsdóminum og hafi því ekki haft áhrif á niðurstöðu dómsins. Sú staðreynd að endurupptökubeiðandi uppfylli ekki skilyrði 105. gr. umferðarlaga um endurveitingu ökuréttar, þar sem hún hafi ítrekað gengist undir viðurlög fyrir brot gegn 49. gr. og 50. gr. umferðarlaga geti engu breytt í þeim efnum. 11.Gagnaðili fellst ekki á að afgreiðsla máls S-2509/2020 hafi falið í sér verulega galla á málsmeðferð sem áhrif hafi haft á niðurstöðu málsins og telur ekki efni til að heimila endurupptöku máls þess, enda teljist skilyrði 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 ekki uppfyllt. 12.Endurupptökubeiðandi sendi andsvör dagsett 2. og 21. maí 2025 og gagnaðili andsvör að sínu leyti 20. sama mánaðar. Ekki þykja efni til að rekja þau andsvör frekar hér. ENDURUPPTÖKUDÓMUR NR. 1/2025 - 3 - Niðurstaða 13.Samkvæmt 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 getur Endurupptökudómur, ef héraðsdómur hefur gengið í sakamáli sem ekki hefur verið áfrýjað og áfrýjunarfrestur er liðinn, orðið við beiðni manns sem telur refsingu bersýnilega ranglega ákvarðaða, að uppfylltum einhverjum af skilyrðum a-d liðar sömu málsgreinar. Í d- lið þeirrar greinar kemur fram að heimila megi endurupptöku ef talið verður að verulegir gallar hafi verið á meðferð máls þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess. 14.Með dómi í máli nr. S-2509/2020 var endurupptökubeiðandi sakfelld fyrir akstur svipt ökurétti og fyrir akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna. Endurupptökubeiðandi sótti ekki þing við þingfestingu málsins og boðaði ekki forföll. Málið var dómtekið á grundvelli 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 enda kom fram í fyrirkalli því er birt var fyrir móður endurupptökubeiðanda á skráðu lögheimili hennar þann 8. júní 2020 að sækti endurupptökubeiðandi ekki þing mætti hún búast við því að dómur yrði lagður á málið að henni fjarstaddri. Efni og birting fyrirkalls var þannig í fullu samræmi við 1. mgr. 155. gr. og 1. mgr. 156. gr. laga nr. 88/2008. 15. Nefndur dómur var birtur fyrir endurupptökubeiðanda 10. september 2020. Endurupptökubeiðandi óskaði ekki eftir endurupptöku málsins í héraði í samræmi við ákvæði 1. mgr. 187. gr. laga nr. 88/2008 svo sem henni var heimilt. 16.Dómurinn telur haldlausa þá málsástæðu endurupptökubeiðanda að við ákvörðun sviptingartíma ökuréttar hefði átt að taka tillit til tveggja sektargerða sem endurupptökubeiðandi gekkst undir 28. október 2020 vegna aksturs undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna 11. og 20. júní 2020. Umrædd brot voru ekki til meðferðar í þeim héraðsdómi sem beiðst er endurupptöku á enda framin eftir útgáfu ákæru aukinheldur sem hið síðara brot er framið eftir uppkvaðningu héraðsdómsins. 17.Meðferð málsins var þannig í fullu samræmi við málsmeðferðareglur laga nr. 88/2008 og ekki er fallist á að verulegir gallar hafi verið á meðferð þess þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess. Því er beiðni endurupptökubeiðanda um endurupptöku málsins hafnað. 18.Endurupptökubeiðanda verður samkvæmt því gert að greiða verjanda sínum þóknun sem telst hæfilega ákveðin 186.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Úrskurðarorð: Beiðni endurupptökubeiðanda, Lindu Pétursdóttur, um endurupptöku á máli nr. S-2509/2020 sem dæmt var í Héraðsdómi Reykjavíkur 19. júní 2020 er hafnað. Endurupptökubeiðandi greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 186.000 krónur.